SJÓN HESTA
Sjón
Sjónsvið hests er mjög vítt, vegna þess að augun eru staðsett utarlega
á hausnum en beint fyrir framan og aftan hausinn er blindur punktur og þá getur
hann þurft að hreyfa höfuðið lítillega til að sjá. Til dæmis sjá reistir hestar
ekki jörðina beint fyrir framan og þurfa þá að lækka höfuðið á ósléttu landi.
Auk þess er sjónsvið hests stillt inn á mismunandi “fókus”, miðhlutinn á stutt
færi en efsti og neðsti hlutinn á lengra færi og af þeim sökum geta hestar þurft
að hreyfa hausinn töluvert til að ná hlutum, sem þeir sjá, inn í sjónnæmara
svæði. Hestar greina hreyfingu mun næmar en menn og geta því greint ýmislegt sem
knapinn greinir ekki. Aftur á móti er talið að þeir greini ekki liti, heldur
ljósnæmi.