LYKTNÆMI HESTA
Lyktnæmni
Hestar eru líka mjög lyktnæmir. Hryssa þekkir afkvæmi sitt á
lyktinni og hestar sem hittast og ganga þétt hver upp að öðrum meta það á
lyktinni hvaða viðbrögð séu við hæfi. Hestar velja líka fóður eftir lykt og
skynja landslag. Finni hestar lykt sem þeir þekkja ekki hnusa þeir af því sem
gefur lyktina frá sér, lyfta hausnum og fýla grön, þ.e. loka lyktina inni í
nasaholinu til að greina hana. Hestar finna líka lykt af skít og hlandi og
stóðhestar geta m.a. fundið hvort meri eigi skítinn. Þeir greina líka á lyktinni
í hvernig skapi maðurinn er. Það er vitað að við gefum frá okkur ýmis efni eftir
því hvernig okkur líður og hesturinn verður þess fljótt áskynja. Hann spennist
upp og verður kvíðinn ef maðurinn er stressaður, spenntur eða æstur en róast og
slakar á ef maðurinn er glaður og rósamur. Auðvitað hjálpar meira en lyktin til
við þessa skynjun á líðan mannsins en það hefur a.m.k. áhrif á hestinn. Þess
vegna borgar sig engan veginn að fara á hestbak sé maður í uppnámi eða vondu
skapi.