HEYRN HESTA
Heyrn
Til að bæta upp frekar dapra sjón hafa hestar mjög næma heyrn. Eyrun
eru vel hreyfanleg, þeim er stjórnað af 16 vöðvum og getur hesturinn snúið þeim
hvoru í sína áttina. Staða eyrnanna sýnir líka hugarástand hesta. Leggi hann þau
t.d. beint aftur er hann óánægður eða í árásarhug. Standi þau beint fram sýna
þau mikinn áhuga á einhverjum hlut og eru hestarnir þá oft reistir og spenntir.
Röddin getur verið mjög þýðingarmikil í meðferð hrossa. Bæði róandi t.d
“hóóóóóooo…” með sefandi rödd, eða hvetjandi. Einnig getur hún falið í sér
verkskipun t.d. “brokk”, sem getur reynst vel á spenntum hestum eða þeim sem
eiga í einhverju basli.