BRAGÐSKYN HESTA
Bragðskyn
Hestar hafa einnig gott bragðskyn og næmni í munni. Þeir vinsa úr
fóður sem ekki er gott, t.d. of beiskt, og hreinsa upp hvert einasta strá sem
þeir geta borðað. Þeir skilja iðulega allt rusl eftir. Á sumrin er ekki óalgegnt
að sjá beitarsvæði hesta vel nöguð en hverja einustu sóley óáreitta
uppistandandi. Bragðskynið er hestinum nauðsynlegt því erfitt getur verið að
finna lykt af fáum beiskum stráum í hrúgu af ilmandi heyi. Hross hænast oft að
sætu bragði, t.d. brauði, og verður að gæta þess vel að nota það í hófi og
aðeins til að hæna að sér stygga hesta eða hrósa hesti fyrir vel unnið verk, en
gæta verður þess vel að ofnota það ekki því hestar verða fljótt ágengir og
frekir á gotteríið og geta “vaðið yfir” manninn.